tag:blogger.com,1999:blog-329641792024-03-12T16:59:25.014-07:00TALIÐ NIÐUR AÐ EFSTA DEGIBergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comBlogger126125tag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-75536006013699770322009-10-13T09:48:00.000-07:002009-10-13T09:49:26.098-07:00Þversögn dagsins„Þetta var til "heimabrúks" svo notuð séu orð Steingríms J. Sigfússonar, sem telur að æfðir stjórnmálamenn meini ekkert sem þeir segja við sína kjósendur.“
Leiðari Moggans 12. október.
„Stjórnarsáttmálar eru óskalistar, þeir eru friðþægingarplögg fyrir fylgjendur, sem trúðu í einlægni kosningaloforðunum, og þeir eru einnig málamiðlunaryfirlýsingar um þau tvö til þrjú mál sem stjórnarflokkana greindi mest á um í nýliðinni kosningabaráttu. Málefnasamningar hafa því dálitla þýðingu í upphafi kjörtímabils, en eftir það er sjaldan litið í þá.“
Leiðari Moggans 5. október. Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-31916912646723542812009-09-08T15:10:00.001-07:002009-09-08T15:28:37.093-07:00Reynir og nafnleysingjarnir (eða Streisandkornsáhrifin)Sandkornshöfundur DV gerir sér mat úr bloggfærslu Björgvins G. Sigurðssonar alþingismanns um nafnlaust níð á netinu. Þykir höfundi sandkornsins Björgvin hafa gengisfallið við skrif hans og uppskorið svonefnd Streisand-áhrif, það er vakið athygli á ómerkilegu slúðri sem annars hefði farið fyrir ofan garð og neðan.
“Þykir sýnt að Björgvin hafi ekki aðgang að góðum ráðgjöfum í almannatengslum sem örugglega hefðu sagt honum að halda kyrru fyrir í stað þess að berjast við vindmyllur,” skrifar sandkornsritari. “Þá þykir ekki trúverðugt að Björgvin skuli ætla að beita sér af alefli fyrir löggjöf til að koma böndum á nafnleysingja.”
Sandkornsritarinn hefði ef til vill mátt setja málið í sögulegt samhengi því Björgvin G. Sigurðsson er engan veginn sá fyrsti sem vill skera upp herör gegn orðníðingum sem vega úr launsátri. Reynir Traustason, núverandi ritstjóri DV, vílaði til dæmis ekki fyrir sér að “berjast við vindmyllur” í ársbyrjun 2006, þegar hann fór í það sem DV kallaði þá “krossferð” gegn nafnleysingjunum á málefnin.com, sem þá voru upp á sitt besta enda Eyjan ekki komin til sögunnar.
Og hvaða viðbrögð skyldi Reynir hafa fengið frá nafnleysingjunum? “Þessi orð Reynis eru besta auglýsing sem vefurinn gat fengið," skrifaði einhver sem kallaði sig Moggatetur. "Hann gerði okkur mikinn greiða, ég segi haldu áfram á sömu braut Reynir.”
Þessu hefði ég ekki munað eftir ef það væri ekki fyrir sandkorn DV. Ætli megi þá ekki kalla þetta Streisandkornsáhrif.Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-58554549978634551012009-09-07T06:25:00.000-07:002009-09-07T08:13:10.519-07:00Egill og nafnleysingjarnirEgill Helgason er í fararbroddi þeirra sem hafa tekið upp þykkjuna fyrir þá sem skrifa athugasemdir á netið undir dulnefni. Agli finnst sú umræða sem spannst í athugasemdakerfi Eyjunnar í kjölfar hrunsins hafa verið frjó. Hann kveðst þó ávallt hafa verið duglegur við að henda versta óhróðrinum út, en margt sem fær að standa er þó ansi mikill viðbjóður. Nú íhugar Egill hins vegar að loka fyrir ummælakerfið hjá sér því honum finnst umræðan stöðnuð og geld. Meira að segja hann er búinn að fá nóg.
Um helgina tók ég saman grein Í Fréttablaðinu þar sem reifuð voru nokkur álitamál um nafnlaus skrif á netið. Í kjölfarið skrifaði Björgvin G. Sigurðsson grein um óhróður sem hann hefur þurft að sæta á netinu. Þá pakkar Egill í vörn.
Agli finnst söguburðurinn um Björgvin ömurlegur en gerir engu að síður lítið úr honum: “En ég verð að viðurkenna að ég vissi ekki að þessi vefur er til fyrr en í dag, sjálfsagt hefði ég ekki heyrt söguna nema vegna þess að Björgvin færði þetta í tal.”
Svo kemur Egill með þá skýringu að umræðan um nafnlaust níð helgist af því að “hrunverjar eru að snúast til varnar, þeir hafa fundið viðspyrnu, hún er sú að umræðan á netinu sé svo hroðaleg”.
Gott og vel. En hvernig bregst Egill við þegar nafnlausar athugasemdir eða rógur beinist að honum? Í október 2004 bregst sjónvarpsmaðurinn til dæmis við athugasemdum Víkverja:
“Víkverji og Staksteinar í Morgunblaðinu eru hérumbil eina fyrirbærið sem stundar þann ósið að skrifa nafnlaust í fjölmiðla. Fyrirbæri, segi ég, því ekki veit ég hvort þarna að baki dylst einstaklingur, klúbbur manna eða hvers konar leynifélag þetta er yfirleitt. Annars bera svona nafnlaus skrif oftast vott um lydduskap - eða í besta falli lélegt sjálfsmat. Það þykir ekki par fínt að þora ekki að standa við skoðanir sínar.
Ég er reyndar fúll út í Víkverja - fyrirbærið eyðilagði fyrir mér morgunkaffið. Í pistlinum í morgun er þar fimbulfambað um sjónvarpsþáttinn minn - af hreinni óvild, finnst mér - og því haldið fram að hjá mér sé alltaf sama fólkið. Ég hef svosem heyrt þennan söng áður.
En ég fór að telja. Ég er búinn með sex þætti í vetur. Í þá hafa komið hvorki meira né minna en 57 manns, en aðeins tveir gestanna hafa komið tvívegis. Þetta eru að meðaltali næstum 10 manns í hverjum þætti. Í þessum hópi eru þónokkrir útlendingar sem álpuðust til Íslands og eru sannarlega ekki fastagestir hjá mér. Í gær var ég með enn einn þátttinn og þar kom meðal annarra fólk sem hefur aldrei eða sárasjaldan komið í sjónvarpið til mín.
Menn ættu aðeins að kynna sér málin aðeins áður en þeir sletta fram svona fullyrðingum. Líka þeir sem þora ekki að koma fram undir nafni." (Feitletranir mínar.)
Þegar Óli Sindri fór hamförum undir dulnefninu Mengella beindi hann oftar en ekki spjótum sínum að Agli. Egill skrifaði í október 2007:
“Hann er kannski vel skrifandi þessi náungi, en hann er rotþró íslenskra bloggheima. Það þarf ansi mikið til að láta henda sér út af Barnalandi. [Sem heitir nú er.is, vefurinn þar sem umræðan um Björgvin G. Sigurðsson grasseraði og Egill kvaðst aldrei hafa heyrt um.]
Og byrja svo að ljúga upp á fólk út í bæ að það sé höfundar bloggsins – kannski finnst viðkomandi það skemmtilegur hlutverkaleikur en ég sé samt ekki fyndnina.
Annars á maður að vera duglegri að setja bara á ignore þegar nafnleysingjar eru annars vegar. Yfirleitt sýnist manni að þeir sem vega úr launsátri netinu gangi ekki heilir til skógar.”
Þegar Óli Sindri, höfundur Mengellu, kom fram undir nafni var skrifuð um það frétt í Fréttablaðinu. Þá skrifaði Egill:
“Fréttablaðið birtir mynd af Mengella. Þetta er eiginlega staðalímynd hins nafnlausa netverja. Maðurinn er svo fælinn að það er eins og hann sé að reyna að komast út úr ljósmyndinni, velur sér reyndar skrýtna leið, ekki til hliðanna, heldur leitar hann undankomu aftast í myndinni – líkt og að hann ætli að láta sig hverfa út um afturendann á myndinni.
En þegar hann skrifar á netið bresta allar hömlur.”
Þetta er nú dálítill tvískinnungur.Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-19496087010497693462009-05-05T05:25:00.000-07:002009-05-05T05:31:17.858-07:00VandlifaðAf Vísi: "Birkir Jón Jónsson. varaformaður Framsóknarflokksins segir það ekki lofa góðu ef ríkisstjórnin geti ekki komið sér saman um Evrópumálin og ætli sér þess í stað að leggja spurninguna um hvort hefja eigi aðildarviðræður í dóm Alþingis..."
Hefði fréttin snúist um að Vg og Samfylking hefðu komið sér saman um að sækja um aðild að ESB, myndi Birkir Jón án efa væla yfir þeirri ósvinnu að þetta mikilvæga mál væri ekki lagt fyrir þingið áður en endanleg ákvörðun yrði tekin.Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-31109392056891655222009-04-29T07:18:00.000-07:002009-04-29T07:19:35.456-07:00HárþingÍ Fréttablaðinu í dag segir að aldrei hafi fleiri sköllóttir verið á þingi, alls sjö. Að óathuguðu máli ætla ég ekki að fjölyrða um hvort um met sé að ræða. Hins vegar verður að teljast líklegt að sköllóttum þingmönnum eigi eftir að fjölga á kjörtímabilinu. Mér dettur að minnsta kosti þrír þingmenn í hug sem eru aðeins hársbreidd frá því að komast í hópinn.Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-40229412862929492902009-04-28T11:30:00.000-07:002009-04-28T11:33:04.542-07:00Þór á þingiMér skilst að Þór Saari, nýbakaður þingmaður Borgarahreyfingarinnar, sé af finnskum ættum. Ætli það sé þess vegna sem hann vill Lappa upp á Alþingi?Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-69226167464707333452009-04-27T15:54:00.000-07:002009-04-27T16:24:03.822-07:00Uppruni orðannaVísir upplýsir að konan sem gekk örna sinna í kjörklefanum um helgina sé hústökumaður. Það leiðir hugann að orðsifjafræðinni. Í ensk-íslenskri orðabók má meðal annars finna þessi tvö orð:
squat: sitja á hækjum sér.
squatter: e-r sem leggur undir sig landareign eða húsnæði.
Eru tengsl þarna á milli? Ætli hugtakið "squatter" sé dregið af því að þeir sem leggja sig undir hús séu iðulega fólk af því sauðahúsi sem sest á hækjur sér og gerir stykki sín á almannafæri?Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-73076460976897126742009-04-21T12:49:00.000-07:002009-04-21T13:16:43.061-07:00BekkjarpartíGefum okkur að ég bjóði mig fram til formanns bekkjarfélags - segjum í 6E. Í kosningabaráttunni lofa ég því að á hverju föstudagskvöldi verði bekkjarpartí með pitsuveislu heima hjá Einari Snæ Bjarnasyni í 6J, sem eins og allir vita á vel stæða foreldra og býr í stóru húsi. Við Einar eigum sameiginlegan vin, Arnar Grétar Stefánsson í 6F, sem þykir ráðagóður og áhrifamikill og ég fullyrði við bekkjarsystkin mín að hann muni hafa milligöngu um þessi pitsupartí heima hjá Einari fyrir mína hönd. Þegar Einar í 6J fréttir af þessu verður hann fúll og skrifar á Facebook-vegginn minn að hann hafi ekki hugsað sér að halda pitsupartí heima hjá sér á hverju föstudagskvöldi og gildi þá einu sameiginlegur vinskapur okkar við Arnar í 6F. Ég geti bara haldið mín eigin bekkjarpartí.
Mín viðbrögð? Ég byrja vitaskuld á því saka Einar um dólgslega árás í minn garð áður en ég arka á fund hjá skólastjóranum og klaga hann fyrir óeðlilega íhlutun af kosningabaráttu minni.Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-8637684987732270792009-04-21T06:33:00.000-07:002009-04-21T06:34:28.612-07:00SköpunarkenninginÁ framboðsfundi fyrir stuttu lagði Illugi Gunnarsson áherslu á að stjórnmálamenn sköpuðu ekki störf, þeir gætu eingöngu lagt grunninn að hagstæðu umhverfi þar sem störf verða til. Í gær sagði Ragnheiður Elín Árnadóttir um að það þyrfti að skapa störf í Suðurkjördæmi. Er Sjálfstæðisflokkurinn klofinn í afstöðu sinni til sköpun starfa?Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-72239491758326276532009-04-21T03:50:00.001-07:002009-04-21T03:51:02.308-07:00Með læsileika að leiðarljósiForlagið auglýsir: "Í dag kemur út bókin Sofandi að feigðarósi eftir Ólaf Arnarson. [...] Bókin er skrifuð með læsileika að leiðarljósi..."Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-21801655387678070282009-04-15T07:58:00.001-07:002009-04-15T07:58:41.702-07:00Spámannlega vaxinnVölvan hvað?Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-61675408479025962332009-04-15T05:06:00.000-07:002009-04-15T05:10:30.548-07:00Beðið eftir dylgjumNú telur maður niður mínúturnar þangað til Egill Helgason ræðst á Brynjar Níelsson. Hann er sjálfsagt að gúggla hann núna og á líklega eftir að byrja færsluna á að rifja upp vafasama menn sem Brynjar hefur varið í gegnum tíðina. Lætur svo hýenunum í athugasemdakerfinu um eftirleikinn.Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-9721107366422920702009-04-14T12:42:00.001-07:002009-04-14T12:52:12.243-07:00Allur munur á brú og borgSamfylkingin leggur fram aðra meitlaða aðgerðaáætlun með grípandi yfirskrift: Skal gert – leiðir jafnaðarmanna í efnahags-, atvinnu- og velferðarmálum.
Ánægjulegt er að ólíkt öðrum flokkum fellur Samfylkingin ekki í frasagrifjuna. Góðu heilli sé ég til dæmis ekki minnst orði á þá kunnu klisju að slá „skjaldborg um heimilin“. Aftur á móti hefur Samfylkingin hugsað sér að leggja „trausta velferðarbrú fyrir heimilin“. Sem er eitthvað allt annað og áhrifaríkara en þessi skjaldborg.
En sporin hræða. Það tók Samfylkinguna ekki langan tíma í að snúa Fagra Íslandi upp í að farga Íslandi. Ætli hún verði að sama skapi lengi að brenna velferðarbrúna að baki sér?Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-43449489343792651672009-04-14T12:03:00.000-07:002009-04-14T12:13:19.004-07:00Alvarlegar ásakanirÍ frétt á Mbl.is er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir spurð út í þau orð Svandísar Svavarsdóttur, að háir styrkir Landsbankans og FL Group til Sjálfstæðisflokksins vekji upp spurningar um mútur.
Þorgerður Katrín segir meðal annars:
„Mér finnst það mjög skringilegt að manneskja sem var meðal annars í samstarfi við Samfylkinguna, sem gerði ekkert annað heldur en að gera grín að Sjálfstæðismönnum í borgarstjórn, sexmenningunum í borgarstjórn ... Ég hef dregið það fram að það var heilt áramótaskaup sem fór í það að stríða sexmenningunum, valta yfir þá.“
Hér talar fyrrverandi menntamálaráðherra sjálfsagt ekki út í loftið. Getur verið að Svandís Svavarsdóttir hafi staðið á bakvið síðasta áramótaskaup?Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-37179966704057837182009-04-07T18:19:00.000-07:002009-04-07T19:29:43.738-07:00"...þar sem illmælgi og gróusögur verða mikilvægari heldur en sannfæringarkraftur og góðar hugmyndir"Vefritið Deiglan skrifar frétt um að Jóhanna Sigurðardóttir hafi hætt við að fara á leiðtogafund NATO um síðustu helgi sökum lélegrar enskukunnáttu. Fyrir það hafi hún, sem og Ísland, beðið álitshnekki innan NATO.
Ef það er rétt er það sjálfsagt frétt og þótt Deiglan sé ekki eiginlegur fréttavefur sé ég fátt því til fyrirstöðu að þar séu slíkar fréttir birtar, að því gefnu að umsjónarmenn hennar telji sig hafa nægilega sterkar heimildir fyrir innihaldinu.
En hvað hefur Deiglan fyrir sér? Í greininni segir: "Fjarvera Jóhönnu á sér þó aðrar skýringar, að því er heimildir Deiglunnar herma. [...] Ekki þarf að fara mörgum orðum um hvað þessum mönnum finnst um þá ástæðu sem íslenski forsætisráðherrann gefur fyrir fjarveru sinni, að það sé svo mikið að gera heima fyrir að hún komist ekki á fundinn. [...] Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Deiglunnar úr tveimur ráðuneytum hafði Jóhanna ráðgert að fara á leiðtogafundinn. [...] Málið þykir mikill álitshnekkir fyrir Íslendinga sem stofnþjóð í NATO. Viðmælendur Deiglunnar í utanríkisþjónustunni segja málið allt hið vandræðalegasta."
Heimildir Deiglunnar byggja semsagt á "áreiðanlegum heimildum úr tveimur ráðuneytum" og nafnlausum viðmælendum úr utanríkisþjónustunni. Þar sem enginn höfundur er skráður fyrir greininni bera ritstjórar vefritsins ábyrgð á henni, þær Sigríður Dögg Guðmundsdóttir og Soffía Kristín Þórðardóttir
Það er svo sem þekkt, nokkuð algengt meira að segja, að hefðbundnir fjölmiðlar birti fréttir sem þeir byggja á "áreiðanlegum" nafnlausum heimildum; heimildarmönnum sem blaðamenn treysta en geta af einhverjum ástæðum - til dæmis starfs síns vegna - ekki komið fram undir nafni. En á Deiglunni hefur hins vegar verið varið við slíkum efnistökum, til dæmis í ágætum og umhugsunarverðum greinarflokki Þórlindar Kjartanssonar, einum af stofnendum Deiglunnar ( titlaður "ritstjóri emerítus" á heimasíðunni), sem bar heitið Pappírstígrar og slúðurberar.
Í greininni Pappírstígrar og slúðurberar IV skrifar Þórlindur meðal annars:
"Enn ein birtingarmynd þeirrar nafnlausu hefðar sem virðist hafa skotið föstum rótum í pólitískri umræðu á Íslandi er tilhneiging fjölmiðla til að vísa blygðunarlaust til nafnlausra heimildarmanna. Þeir sem starfað hafa í fjölmiðlum hafa flestir lært að betra og ábyrgara sé að fá fólk til að tjá sig undir nafni, jafnvel þótt menn séu gjarnan til í að slúðra og taka stórt upp í sig ef því er lofað að ummæli séu "off record."
Þegar fréttir eru settar af stað - jafnvel búnar til - með nafnlausum skrifum á netinu og í dagblöðum - er ekki nema furða að vandaðri fjölmiðlum séu búnir nokkrir erfiðleikar. Það er ömurlegt að sitja eftir með sárt ennið á meðan aðrir skúbba stórfréttum. Freistingin er því nokkuð stór að taka þátt í þeim leik að hringja út rúnt á nokkra málglaða en feimna álitsgjafa - leyfa þeim að láta gamminn geysa gegn loforði um nafnleynd og trúnað og birta svo afraksturinn sem frétt. Svo virðist sem þetta sé orðin viðtekin venja meðal allra fjölmiðla á Íslandi.
Hættan við þetta er hins vegar mjög mikil. Nafnlausir heimildarmenn, sérstaklega í stjórnmálum, eru að jafnaði ekki hlutlausir áhorfendur. Þvert á móti ættu fjölmiðlamenn að tortryggja mjög tjáningarþörf þeirra í skjóli nafnleyndar. Stjórnmálamenn sem tjá sig nafnlaust við fjölmiðla hafa örugglega eitthvað markmið. Þegar fjölmiðlamenn leyfa þeim að koma skoðunum sínum á framfæri - og taka sjálfir ábyrgð á orðum þeirra - eru þeir að leika sér að eldi.
Blaðamenn hafa venjulega mjög mikinn vara á þegar vitnað er í nafnlausa heimildarmenn. Það er einungis gert ef talið er að það steðji raunveruleg hætta að heimildinni eða aðrir slíkir hagsmunir séu í húfi. Hugmyndin er ekki sú að spara fólki þau óþægindi að koma upp um afstöðu sem getur valdið öðrum sárindum.
Stjórnendur fjölmiðla á Íslandi hljóta að velta fyrir sér þessa dagana hvort ekki sé tilefni til að endurskoða reglur um nafnlausan fréttaflutning. Kjósendur eiga heimtingu á því frá kjörnum fulltrúum að þeir gefi upp afstöðu sína til þeirra mála sem upp koma. Fjölmiðlar eru mikilvægasti bandamaður kjósenda í að tryggja að stjórnmálamenn standi við þessar skyldur sínar og komist ekki upp með að breyta stjórnmálum í barnalegan sandkassaleik þar sem illmælgi og gróusögur verða mikilvægari heldur en sannfæringarkraftur og góðar hugmyndir."
Ég fæ ekki betur séð að "frétt" Deiglunnar um lélega enskukunnátta Jóhönnu sé einmitt af þeirri sort sem Deiglan varaði eindregið við fyrir ári síðan og hvatti fréttamiðla til að gjalda með varhug. Er nokkur ástæða til að verða ekki við því?Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-80756255584381545722009-03-25T05:44:00.000-07:002009-03-25T06:24:09.257-07:00ÍsbjörgNú um mundir er sérstaklega vinsælt að markaðssetja hvers kyns menningarafurðir, ekki síst bækur, með skírskotun í atburði líðandi stundar og láta að því liggja að höfundurinn hafi séð óorðna atburði fyrir.
Í ljósi þess að ein helsta birtingarmynd efnahagshrunsins er auðvitað IceSave reikningarnir í Bretlandi - og eins og allir vita eru ljón áberandi í breska skjaldarmerkinu - kemur óneitanlega á óvart að ekki sé þegar búið að endurútgefa Ég heiti Ísbjörg - ég er ljón.
Á Bókmenntavefnum gerir Kristín Viðarsdóttir grein fyrir verkum Vigdísar Grímsdóttur. Hún skrifar meðal annars: "[Í] mörgum tilfellum eiga persónur afar erfitt með að takast á við þann veruleika sem blasir við þeim en leita þess í stað inn á við og loka sig af í skálduðum heimi sem þær telja sig hafa á valdi sínu." Þetta eigi til dæmis við um Ísbjörgu.
Hmm, hverjum fleiri en Ísbjörgu hefur fundist erfitt að takast á við þann veruleika sem blasir við þeim og lokað sig af í skálduðum heimi, til dæmis skálduðum heimi loftbóluhagkerfisins?
Fyrir vanan markaðsmann í bókabransanum væri vitaskuld leikur einn að smíða úr þessu gagnorða allegóríska túlkun, prenta afan á bókakápuna ásamt mátulega loðnu orðalagi um spádóma sem rættust og selja eins og fimm þúsund eintök, lágmark.
Langsótt? Ónei!Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-71281298104396609702009-03-23T12:49:00.000-07:002009-03-23T12:55:22.698-07:00HagfeldurEgill Helgason segir að höfundur Seðlabankaskýrslunnar sé ritfær maður. Það má til sanns vegar færa. Fyrir utan að skýrsluhöfundur kann ekki að stafa orðið "hagfelldur", heldur talar hann ítrekað um "hagfeld".
Nema hann eigi við einhvers konar pels?Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-45856887288614902082009-03-19T04:12:00.000-07:002009-03-19T04:15:59.251-07:00Um sannleiksást Bjarna HarðarsonarBjarni Harðarson, bóksali og fyrrverandi þingmaður, birtir færslu á vef sínum sem snertir þann sem hér skrifar. Ég setti inn athugasemd hjá honum. Birti hana að auki hér:
Sem umsjónarmanni aðsendra greina á Fréttablaðinu finnst mér ég knúinn til að gera athugasemdir við þennan óhróður.
Á undanförnu ári hafa eftirtaldar greinar eftir Bjarna birst í Fréttablaðinu:
Svissneski frankinn er möguleg leið
Tölfræði ESB sinna og landsbyggðarstyrkirnir
Talnaleikir ESB – sinna og draumaríkið
Evrópuglufa Guðna Ágústssonar!
Af öfugri þjóðrembu og steinsmugu í Danaveldi
Einangrunarsinnar og ESB aðild
Ómarktækir fjölmiðlar
Lýðræði og flokksræði
Síðasttalda greinin birtist 4. mars síðastliðinn.
Mín fyrstu kynni af Bjarna voru þegar ég tók viðtal við hann eftir alþingiskosningarnar 2007. Það fór iðulega vel á okkur eftir það; hann sendi mér oft greinar og notaði stundum tækifærið til að gauka að mér ábendingum sem gátu komið að gagni við fréttaskrif.
Eins og Bjarni nefnir sendi hann mér grein eftir félaga sinn, það var þó ekki síðastliðið haust eins og Bjarni heldur fram, nær er að það hafi verið haustið 2007. Ég skýrði það fyrir Bjarna að ég kæmi henni trauðla að, ég man málavexti ekki nákvæmlega en mig minnir að það hafi verið sökum plássleysis. Það hafði að minnsta kosti ekkert með þær skoðanir sem birtust í greininni að gera – við höfnum ekki greinum á grundvelli skoðana svo lengi sem framsetningin er innan velsæmismarka. Bjarni svaraði með glensi í þá átt að þetta væri tímamótagrein, þar sem í henni væri talað fallega um bæði Davíð Oddsson og Ólaf Ragnar, en tók þó skýringu mína gilda. Þetta hafði að minnsta kosti engin áhrif á samskipti okkar, sem voru eftir sem áður vinsamleg. Bjarni hélt áfram að skrifa greinar, sem birtust nær flestar, ef ekki allar.
Þetta breyttist hins vegar fyrir ekki svo löngu þegar ég skrifaði frétt um greinarsafn sem Bjarni gaf út, Farsældar frón. Þar vakti athygli ný grein þar sem Bjarni kvaðst einn bera ábyrgð á því að upp úr stjórnarsamstarfi Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins slitnaði, hann hafi róið öllum árum gegn því og sagst mundu hætta á þingi ef af því yrði. (Það er kannski til marks um það hversu vel fór á með okkur Bjarna að hann sendi mér, auk Helga Seljans í Kastljósi, greinina á undan öðrum fjölmiðlum). Greinin var vissulega merkileg aflestrar. Ég minntist þess aftur á móti að hafa spurt hann um nákvæmlega þetta í viðtalinu eftir alþingiskosningar. Þá sagði Bjarni það af og frá að hann bæri ábyrgð á að upp úr slitnaði; hann hafi vissulega gert fólki grein fyrir að honum hugnaðist það ekki en ef áframhaldandi samstarf við Sjálfstæðisflokkinn yrði lendingin myndi hann styðja það. Mér fannst ástæða til að rifja þessi orð Bjarna upp og birti þau í fréttinni.
Skemmst er frá því að segja að Bjarni tók þetta afar óstinnt upp. Í símtali sem ég átti við hann daginn sem fréttin birtist var honum mjög heitt í hamsi, kallaði mig ýmsum ónöfnum, ómerkilegan lygara, leiguþý Baugs og þar fram eftir götunum. Daginn eftir birtist önnur frétt um málið, þar sem Bjarni svaraði því til að það væri ekkert ósamræmi á milli þess lýsa yfir ábyrgð á því að hafa klofið heila ríkisstjórn og að hafa áður sagst mundu styðja sömu ríkisstjórn ef hún starfaði áfram.
Eftir þetta hafa samskipti okkar Bjarna ekki verið upp á marga fiska. Bjarni heldur engu að síður áfram að senda inn greinar, sem er auðvitað sjálfsagt mál að taka við og birta. Síðasta greinin eftir hann birtist 4. mars, eins og áður kom fram, auk þess sem tvær greinar eftir hann bíða birtingar.
Bjarna finnst með öðrum orðum hið illa Baugsbákn, sem þaggar niður lýðræðislega umræðu, eftirsóknarverður vettvangur til að birta greinar sína.
Þá er rétt að halda því til haga greinar eftir aðra fulltrúa L-listans hafa birst nýlega í Fréttablaðinu; grein eftir Þórhall Heimisson birtist fyrir að verða hálfum mánuði og grein eftir Gunnar Kristinn Þórðarson birtist nú síðast á miðvikudag.
Af ofansögðu má ljóst vera að þessi færsla Bjarna Harðarsonar er ómerkilegur rógur frá upphafi til enda, að stóru leyti sprottinn af persónulegri óvild hans í minn garð. Bjarni sagði af sér þingmennsku á sínum tíma eftir að hafa gerst uppvís að bolabrögðum. Það þótti mörgum, þar á meðal mér, til marks um að hann kynni að skammast sín. Þessi færsla hans bendir til hins gagnstæða.
Skúli Eggert Þórðarson og Napoleon Dynamite.Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-39990633132064101192009-03-12T13:28:00.000-07:002009-03-12T13:48:55.832-07:00Ekki smartAuðvitað vona ég að lágvöruverslanir Jóns Gerald Sullenberger komi til með að efla samkeppni á matvörumarkaði og verði neytendum til hagsbóta. En mikið má verðið vera lágt ef ég ætla að leggja leið mína í búð með nafninu Smart Kaup. Þetta er eins plebbalegt nafn og hugsast getur; vekur hugrenningatengsl við feitar, amerískar kellingar í bleikum krumpugöllum með smáhunda í eftirdragi. Sá sem stakk upp á þessu nafni við Jón Gerald hlýtur að vera flugumaður Jóns Ásgeirs. Hér er verkefni fyrir vanan höfund grípandi slagorða og aðlaðandi auglýsingatexta- nú er lag Ágúst Borgþór! Sýndu manninum villur síns vegar.Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-19415077685941607212009-03-05T06:25:00.000-08:002009-03-05T06:30:12.087-08:0015 mínúturNú styttist í alþingiskosningar. Eins og búast mátti við er hvimleiða klisjan um "korterið fyrir kosningar" byrjuð að skjóta upp kollinum á bloggsíðum.
DV greinir frá því að Sigmundur Ernir Rúnarsson, sem býður sig fram í 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi hafi verið tekinn á teppið fyrir að prenta kosningabæklinga í lit. Það mun fara á svig við reglur flokksins, sem kveða á um að frambjóðendur haldi kostnaði í lágmarki og prenti kynningarrit eingöngu í svarthvítu.
Ekki veit ég hvort sama tilhögun gildi hjá Samfylkingunni í öllum kjördæmum, en ef svo er gæti það haft tvöfaldan sparnað í för með sér fyrir suma frambjóðendur. Það gefur jú auga leið að ef kosningabæklingar eru svarthvítir er minni þörf fyrir frambjóðendur að fjárfesta í dýrum brúnkukremum til að líta hraustlega út á myndum.
Það er að segja ef einhver í Samfylkingunni brúkar svoleiðis.Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-9782698359758925592009-03-03T14:51:00.000-08:002009-03-03T14:52:21.686-08:00StefnanGuns don't kill people - people do. Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-61294790852986501572009-03-03T04:43:00.001-08:002009-03-03T04:47:53.388-08:00HandaskolÍ fréttum segir að frá 2005 til 2008 hafi Ólafur Ragnar Grímsson ferðast níu sinnum með einkaþotu. Andstæðingar Ólafs núa honum því um nasir að hann sagði í blaðaviðtali í fyrra að flugferðir hans með einkaþotum væri teljandi á fingrum annarrar handar. Ég vil láta forsetann njóta vafans. Hann var ábyggilega að hugsa til stökkbreyttrar handar.Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-32964179.post-52827361738066067032009-02-24T05:09:00.000-08:002009-02-24T05:26:11.619-08:00Eiður gegn NirðiEiður S. Guðnason, fyrrverandi sendiherra og áhugamaður um vandað mál, vekur athygli á þeim sóðaskap sem stafar af skítugum, tættum plastborðum á ljósastaurum milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Eiði skilst að samtökin Nýtt lýðveldi hafi komið borðunum fyrir. Hann skrifar: Sé það rétt að þessi samtök beri ábyrgð á þessum umhverfissóðaskap ættu þau að sjá sóma sinn í fjarlægja þessar plastslitrur sem nú flygsast í vindinum. Varla ætlast þau til að bæjarstarfsmenn hreinsi þetta á kostnað skattborgara, - eða hvað?
Svo skemmtilega vill til að forsprakki Nýs lýðveldis er annar áhugamaður um málvernd, sjálfur Njörður P. Njarðvík. Ólíklegt er að Njörður sitji þegjandi undir ákúrum Eiðs. Hér stefnir í ritdeilu - á gullaldarmáli.Bergsteinn Sigurðssonhttp://www.blogger.com/profile/01192280781932940356noreply@blogger.com