Tuesday, March 03, 2009

Handaskol

Í fréttum segir að frá 2005 til 2008 hafi Ólafur Ragnar Grímsson ferðast níu sinnum með einkaþotu. Andstæðingar Ólafs núa honum því um nasir að hann sagði í blaðaviðtali í fyrra að flugferðir hans með einkaþotum væri teljandi á fingrum annarrar handar. Ég vil láta forsetann njóta vafans. Hann var ábyggilega að hugsa til stökkbreyttrar handar.