Thursday, December 14, 2006

Öflugur bloggari

Ég tek eftir að á nokkrum víðlesnum bloggsíðum taka höfundarnir stundum sérstaklega fram þegar þeir vísa á þennan eða hinn, að þar fari "öflugur bloggari". Eins og það að blogga mikið sé einhvers konar lyndiseinkunn, myndi jafnvel sóma sér vel sem grafskrift.
Ég er ekki öflugur bloggari, sem samkvæmt þessum nýja mælikvarða á mannkosti hlýtur að merkja að ég sé frekar lásí karakter.